Þriðjudagur, febrúar 17, 2026
HeimFréttirPólitíkSkarphéðinn Orri leiðir lista Sjálfstæðisflokksins

Skarphéðinn Orri leiðir lista Sjálfstæðisflokksins

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor var haldið sl. laugardag.

Alls greiddu 1.502 skráð sjálfstæðisfólk atkvæði í prófkjörinu. Gild atkvæði voru 1.461 og 41 seðlar voru auðir og ógildir.

Fimmtán manns kost á sér í fyrstu 6 sæti listans og voru úrslit þessi:

  1. Skarphéðinn Orri Björnsson hlaut 754 atkvæði í 1. sæti eða 51,6% atkvæða.
  2. Kristín María Thoroddsen varð í öðru sæti með 670 atkvæði í 1.–2. sæti eða 45,9%
  3. Viktor Pétur Finnsson með 673 atkvæði í 1.–3. sæti eða 46,1%.
  4. Guðbjörg Oddný Jónasdóttir með 749 atkvæði í 1.–4. sæti eða 51,3%.
  5. Kristinn Andersen með 635 atkvæði í 1.–5. sæti eða 43,5%
  6. Helga Björg Loftsdóttir með 676 atkvæði í 1.–6. sæti eða 46,3%.

Leiðtogaslagurinn

Orri og Kristín voru þau einu sem stefndu á 1. sætið en í það fékk Orri 754 atkvæði en Kristín 530 atkvæði. Alls hlaut Orri 968 atkvæði en Kristín 914 atkvæði.

Orri vann markvisst að kjöri sínu allt síðasta ár ef marka má færslur hans á Facebook á meðan Kristín tilkynnti seint um framboð sitt. Það vakti athygli að Orri hafði stuðning Morgunblaðsins sem birti heilsíðu drottningarviðtal við hann í prófkjörsvikunni á meðan Kristín fékk ekki birta grein í sama blaði skv. færslu Kristínar á Facebook.

Mismunandi markmið

Árangur Viktors Péturs Finnssonar er athyglisverður en hann er nýr á lista flokksins en á ættir að rekja til eldra Sjálfstæðisfólks. Hann hafði stefnt á 2. sætið og má vel við una með 3. sætið.

Guðbjörg Oddný Jónasdóttir bauð sig fram í 2. sætið en hafnaði í 4. sæti.

Kristinn Andersen, forseti bæjarstjórnar, gaf kost á sér í 3. sæti en hafnaði í 5. sæti.

Eva Björk Harðardóttir bauð sig fram í 3. sætið

Hilmar Ingimundarson bauð sig fram í 3. sætið

Helga Björg Loftsdóttir, varabæjarfulltrúi, bauð sig fram í 3. sætið en hafnaði í 6. sæti.

Örn Geirsson bauð sig fram í 4. sætið en hafnaði í 11. sæti.

Birkir Snær Brynleifsson er 22 ára, fæddur og uppalinn Hafnfirðingur og bauð sig fram í 4.-5. sætið

Einar Páll Þ. Mathiesen bauð sig fram í 4.-5. sætið en hafnaði í 7. sæti

Kristjana Ósk Jónsdóttir bauð sig fram í 4.-6. sæti en endaði í 8. sæti.

Unnur Elín Sigursteinsdóttir bauð sig fram í 4.-6. sæti.

Þórhallur Guðmundsson bauð sig fram í 5. sæti.

Júlíus Freyr Bjarnason stefndi á eitt af 10 efstu sætum og hafnaði í 9. sæti.

Niðurstöður þeirra sem lentu neðar en í 6. sæti var að finna á samfélagsmiðlum.

Sjálfstæðisflokkurinn fékk 4 bæjarfulltrúa í síðustu kosningum.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2