HeimFréttirPólitíkSkiptir yfir í Framóknarflokkinn

Skiptir yfir í Framóknarflokkinn

Kolbrún Magnúsdóttir, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og fulltrúi í fræðsluráði bæjarins hefur ákveðið að færa sig yfir í Framsókn og gefa kost á sér þar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Hún tilkynnti þetta í morgun og segir m.a.:

„Á síðustu fjórum árum hef ég starfað innan Samfylkingarinnar. Eftir vandlega íhugun hef ég ákveðið að halda áfram pólitísku starfi mínu með Framsókn. Sú ákvörðun byggir á því hvar ég tel mína reynslu, þekkingu og krafta nýtast best þegar horft er til framtíðar Hafnarfjarðar. Þar finn ég nú meiri samhljóm við áherslur og þá nálgun sem Framsókn leggur til grundvallar í bæjarstjórn.“

Þá segir hún: „Ég býð mig fram til starfa af heilindum og einlægum vilja til að leggja mitt af mörkum fyrir Hafnarfjörð. Undir forystu Framsóknar tel ég mig geta tekið þátt í að byggja samfélag þar sem jafnvægi, velferð og skýr framtíðarsýn fara saman.

Ég trúi því að góð stjórnun byggi á skýrri sýn, mannúð og ábyrgð. Sú nálgun mótar bæði mína faglegu vinnu og mitt pólitíska starf. Í bæjarstjórn vil ég leggja áherslu á að efla mannlega þætti innan stjórnsýslunnar, styrkja samtal og samráð við íbúa og stuðla að samfélagi þar sem fólk finnur til öryggis, þátttöku og jafnvægis.“

Framsóknarflokkurinn og óháðir fengu 1.750 atkvæði, 13,7% atkvæða, í síðustu kosningum og tvo bæjarfulltrúa, 5. og 11. bæjarfulltrúann. Bætti flokkurinn við sig 71%.

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2