Föstudagur, febrúar 6, 2026
HeimFréttirMikið tjón í sinueldi við Hvaleyrarvatnsveg

Mikið tjón í sinueldi við Hvaleyrarvatnsveg

Mikil skemmd var á trjárækt í brekkum á móts við módelflugvöllinn við Hvaleyrarvatnsveg í gær er þar logaði mikill sinueldur. Er þetta á uppfyllingu þar sem öskuhaugarnir voru áður.

Hundruð trjáa urðu eldinum að bráð. Byrjað var að gróðursetja þarna í hlíðarnar árið 2017 þegar erlendir skátar plöntuðu þarna. „Þetta er mikið tjón bæði fjárhagslegt og tilfinningalegt en tréin þarna eru meira og minna gróðursett af ýmsum sjálfboðaliðum bæði innlendum og erlendum,“ segir Steinar Björgvinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. „Sem dæmi má nefna að börn úr Skarðshlíðarskóla hafa gróðursett þarna og svo hefur verið gróðursett þarna á sjálfboðaliðadögum félagsins undanfarin ár.“

Segir hann allt of oft sem sinubrunar verði í upplandi Hafnarfjarðar og oft hafi skemmdirnar verið miklar.

Svæðið var nokkuð stórt sem brann. Hamraneshverfið og Skarðshlíðin framundan.

Slökkviliðið mun hafa fengið tvö brunaboð í vikunni frá Hamranesi á þessum sama stað.

Annað hafi verið í gær en Skógræktarfélaginu var ekki tilkynnt um það og fulltrúar þess vissu því ekki hvort mikl skemmd hafi orðið við þann bruna.

Brunastaðurinn og Hvaleyrarvatn í baksýn. – Ljósm.: Jökull Gunnarsson

Ekki er vitað hvar upptök brunans voru eða hvað olli honum en Jökull Gunnarsson, starfsmaður Skógræktarfélagsins segir fólk leggja oft við brekkuna og reykja eitthvað. Segir hann marga stubba hafa verið sjáanlega þar í kring.

– Ljósm.: Jökull Gunnarsson

Sl. þriðjudag var Skógræktarfélaginu tilkynnt um að átta strákar c.a. 10-13 ára væru að kveikja varðeld með mosa og greinum í rjóðri við Hvaleyrarvatn. „Það var stöðvað en hefði getað endað illa þar sem drengirnir voru algerlega úti að aka í meðferð elds,“ segir Jökull . Sagði hann að strákarnir hafi sagst ekki vita að bannað væri að kveikja eld þarna, þrátt fyrir skilti við öll bílastæði.

– Ljósm.: Jökull Gunnarsson

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2