Miðvikudagur, febrúar 4, 2026
HeimFréttirPólitíkHilmar Ingimundarson sækist eftir þriðja sætinu á lista Sjálfstæðisflokksins

Hilmar Ingimundarson sækist eftir þriðja sætinu á lista Sjálfstæðisflokksins

Ágætu Hafnfirðingar!

Síðastliðið tvö kjörtímabil hef ég fengið tækifæri til þess að koma að bæjarmálum í Hafnarfirði með því góða og öfluga fólki, sem þar hefur lagt hönd á plóg. Fyrir það er ástæða til þess að þakka af heilum hug, því sú aðkoma hefur verið mér bæði gjöful og skemmtileg.

Ég hef verið búsettur í Hafnarfirði allan minn búskapartíma síðan námi lauk. Eiginkona mín er fædd hér og upp alin og eigum við þrjú börn, sem öll hafa alist hér upp. Ég starfa sem framkvæmdastjóri Fimleikafélagsins Björk, hef setið í fræðsluráði bæjarins sem aðalfulltrúi síðastliðin tvö kjörtímabil og í bæjarstjórn sem varabæjarfulltrúi á yfirstandandi kjörtímabili. Ég hef fengið tækifæri til þess að koma að vinnu við fjölmörg þeirra góðu mála, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið að í bæjarstjórn, og nú leita ég eftir stuðningi við að geta komið af enn meiri krafti að eftirfylgni mála með ósk um stuðning við skipan mína í þriðja sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar.

Mínar áherslur eru skýrar:

  1. Ábyrg fjármálastjórn.
  2. Skýr forgangsröðun verkefna.
  3. Öflug lögbundin grunnþjónusta.
  • Í mínum huga er mikilsvert að fara vel með almannafé, gæta hagsýni og byggja upp traustan rekstur, sem skilar ávinningi beint til íbúa. Ég tel mikilvægt að gæta aðhalds í álögum á bæjarbúa og tel ég æskilegt að stefna að því að Hafnarfjörður verði í hópi þeirra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, sem halda útsvari og fasteignasköttum í lágmarki. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að tala máli þeirra, sem vilja halda stærri hluta tekna sinna til eigin ráðstöfunar – frekar en að vera í flokki þeirra, sem vilja fara stöðugt dýpra í vasa skattgreiðenda og telja sig betur til þess fallna að ráðstafa þeirra fé. Það er orðið ansi langt gengið þegar vinnandi fólk heldur að jafnaði rétt liðlega helmingi tekna sinna til eigin ráðstöfunar eins nú á við.

Góð fjármálastjórn snýst þó ekki bara um fjármál. Hún snýst um lífsgæði. Lífsgæði fyrir alla aldurshópa. Hafnarfjörður á að vera bær fjölskyldunnar, þar sem börn fá góða menntun, foreldrar upplifa þjónustu sem virkar og eldri borgarar finna samhug, virðingu og öryggi.

  • Góð menntun er forsenda jafnra tækifæra, sjálfstæðis einstaklinga og samkeppnishæfni samfélagsins til framtíðar. Ég vil sjá Hafnarfjörð í fremstu röð, þegar kemur að fagmennsku, nýsköpun og vellíðan í skólum. Víðsýni í skólamálum snýst um að sameina frelsi og ábyrgð: að treysta fagfólki okkar og gefa skólum svigrúm til að þróast, en gera jafnframt skýrar kröfur um árangur, gagnsæi og stöðugar umbætur. Með snemmtækum stuðningi, öflugri sérfræðiþjónustu og virku samstarfi við foreldra tryggjum við að enginn verði skilinn eftir.

Skólastarf þarf að byggjast á öflugri samvinnu foreldra og starfsmanna skóla og styðja börn í námi með skýrri dagskipan, fagmennsku og þjónustu sem virkar. Þegar skólinn virkar vel, virkar samfélagið betur. Kerfin eiga að auðvelda líf fólks – ekki flækja það.

  • Íþrótta- og tómstundastarf er ein besta fjárfesting samfélagsins í heilsu, vellíðan og félagslegri samheldni. Ég vil tryggja að allir, óháð aldri eða efnahag, hafi raunverulegt aðgengi að hreyfingu, útivist og félagsstarfi. Víðsýni í íþrótta- og tómstundastarfi felst í því að setja frjáls félagasamtök í öndvegi. Verum minnug þess, að sterkt íþrótta- og tómstundalíf er ekki aðeins afþreying. Það er burðarstoð lýðheilsu og forvarna. Hlutverk bæjarins er að styðja frjáls félagasamtök með aðstöðu, sanngjörnu rekstrarumhverfi og samstarfi – ekki að taka starf þeirra yfir.

Ábyrg fjármálastjórn er rauði þráðurinn í öllu þessu. Hún er ekki mótsögn við öfluga þjónustu – hún er forsenda hennar. Við eigum að leggja sérstaka rækt við að fara vel með fé skattgreiðenda, hagræða í rekstri og einfalda ferla án þess að skera niður þjónustu. Markmiðið er skýrt: traustur rekstur, sem skilar ávinningi til íbúa og svigrými til að lækka álögur.

  • Samgöngumál eru mér einnig sérstaklega hugleikin. Góðar samgöngur snúast fyrst og fremst um að greiða för: spara tíma fólks. Tíma sem á að fara í vinnu og tómstundir og til þess að styrkja fjölskyldulífið – ekki til að eyða í biðröðum í umferðinni. Hafnarfjörður á ekki að vera biðstofa fyrir gegnumumferð. Íbúar bæjarins eiga ekki að fórna dýrmætum tíma vegna umferðar, sem á ekkert erindi í bæinn. Við þurfum að ná meiri árangri í samgöngubótum, gera meira og gera það hraðar – með raunhæfum lausnum, sem bæta lífsgæði fólks og styrkja bæinn til framtíðar. Það þarf að gera með þéttara samtali við þingmenn okkar, því stofnæðar um bæinn eru á verksviði ríkisins.

Ágæti lesandi!

Ég vil nálgast stjórnmál frá hægri  með hjartað í samfélaginu og augun á framtíðinni. Ég er vinnusamur, tel mig vera með hjartað á réttum stað og vil horfa með markvissum hætti til framtíðar. Ég óska eftir því að fá að halda áfram að leggja mitt af mörkum í þágu Hafnfirðinga. Til þess þarf ég stuðning og óska því eftir 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í komandi bæjarstjórnarkosningum.

Hilmar Ingimundarson – www.hilmari.is
frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði,
sem fram fer 7. febrúar næstkomandi.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2