Karólína Helga Símonardóttir sigraði í prófkjöri Viðreisnar í Hafnarfirði og mun því leiða listann í komandi sveitarstjórnarkosningum.
„Mér er efst í huga mikið þakklæti til félagsfólks okkar í Hafnarfirði. Þetta hefur verið snörp en skemmtileg prófkjörsbarátta. Ég þakka Jón Inga fyrir drengilega baráttu,“ segir Karólína Helga í tilkynningu á vef Viðreisnar. og bætti við: „Nú getur Viðreisn í Hafnarfirði svo sannarlega brett upp ermar og farið í kröftuga sveitarstjórnarbaráttu í vor.“
Viðreisn hefur átt einn fulltrúa í bæjarstjórn Hafnarfjarðar síðustu tvö kjörtímabil.
Á kjörskrá voru 753 og var kjörsókn 82%.
Bar Karólína Helga sigur á sitjandi formanni Jóni Inga Hákonarsyni með 317 atkvæðum í fyrsta sæti gegn 259 atkvæðum sem Jón Ingi fékk.
Árni Stefán Guðjónsson bar sigurorð um 2. sætið með 361 atkvæði í 1.-2. sætið en Hjördís Lára Hlíðberg hlaut 120.
Aðeins var kosið í fyrstu tvö sætin.



