Þegar jólin nálgast finnum við mörg fyrir álagi. Við erum föst í umferðarteppum með langa lista yfir ókláraða verkefni og finnst tíminn ekki nægja til að klára allt sem þarf að gera fyrir hátíðarnar. En í öllum þessum ys og þys er mikilvægt að staldra við, draga andann djúpt og minna okkur á hvað jólahátíðin snýst um – að hlúa að okkar nánustu, njóta líðandi stundar og skapa hlýjar minningar.
Á árinu sem er að líða höfum við séð margt jákvætt gerast í Hafnarfirði. Hagur bæjarins hefur vænkast, og það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með því hvernig samfélagið okkar dafnar. Jólaþorpið okkar hefur aldrei verið jafn fallegt, og bærinn skartar sínu fegursta í jólaskrúði. Það er mikil gleði að sjá hvernig Hafnfirðingar koma saman til að njóta hátíðarljósanna, hlýlegra viðburða og þess einstaka anda sem einkennir bæinn okkar um jólin.
Jólin koma alltaf, jafnvel þótt verkefnin á listanum klárist ekki öll. Við getum tekið á móti nýju ári með bjartsýni og von, þakklát fyrir það góða sem árið hefur fært okkur og tilbúin til að gera enn betur á komandi tímum.
Ég óska öllum bæjarbúum í Hafnarfirði gleðilegra jóla og farsæls nýs árs. Megi friður, kærleikur og gleði fylgja okkur öllum inn í nýja árið.
Jólakveðja,
Hilmar Ingimundarson





