Prófkjör Sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði verður haldið 7. febrúar nk.
Kosið verður um sex efstu sætin á listanum.
„Að prófkjöri loknu mun kjörnefnd taka til starfa sem mun koma með tillögu að röðun listans sem svo verður lögð fyrir fulltrúaráðið til samþykktar,“ segir Kristjana Jónsdótir, formaður Fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði.
Réttur til að kjósa í prófkjörinu er skv. prófkjörsreglum Sjálfstæðisflokksins. Kjósendur þurfa að vera fullgildir meðlimir sjálfstæðisfélags í Hafnarfirði eða hafa undirritað inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag fyrir lok kjörfundar.
Framboð skal senda kjörnefnd á hafnarfjordur@xd.is, framboðsfrestur rennur út 4. janúar 2026.



