Laugardagur, nóvember 15, 2025
target="_blank"
HeimFréttirGáfu Víðistaða­kirkju stóra gjöf

Gáfu Víðistaða­kirkju stóra gjöf

Systrafélag sóknarinnar hefur lengi verið rausnarlegt við Víðistaðakirkju

Stjórn Systrafélags Víðistaðasóknar afhenti Víðistaðakirkju gjafabréf að upphæð 1.460.000 kr. á fundi í tilefni 45 ára afmælis félagsins þann 6. október s.l.

Hluti gjafarinnar, 460 þúsund kr. eru til að bæta aðgengi að kirkjunni og ein milljón kr. rennur í framkvæmdasjóð kirkjunnar.

„Systrafélag Víðistaðasóknar hefur styrkt kirkjuna með mörgum góðum gjöfum í gegnum tíðina en aðal fjáröflun félagsins hefur verið hin árlega blómasala sem bæjarbúar hafa verið ötulir að styðja okkur við og þökkum við þeim kærlega fyrir góðan stuðning í gegnum árin,“ segir Ólöf Helga Júlíusdóttir formaður félagsins í samtali við Fjarðarfréttir.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2