Miðvikudagur, nóvember 12, 2025
target="_blank"
HeimÁ döfinniMultiverse á Síðdegistónum í Hafnarborg

Multiverse á Síðdegistónum í Hafnarborg

Multiverse, kvartett trommuleikarans Scotts McLemore, kemur fram á næstu Síðdegistónum í Hafnarborg.

Þá snýst nýútkomin plata kvartettsins, Onward, um bjartsýni fyrir framtíðinni – eitthvað sem sárlega vantar í heiminum í dag.

Mannskapurinn hefur breyst í gegnum tíðina hjá Multiverse en tónlistin sjálf á alltaf rætur að rekja til þess að reyna að gera meira með minna, í anda mínimalískrar nálgunar. Tónsmíðarnar eru lýrísk blanda af amerískri og norrænni tónlist, þar sem hljóðfæraleikararnir finna sameiginlegan farveg í flæði og túlkun sem hrífur hlustandann með á einstakan hátt.

Kvartettinn skipa, auk Scotts, þeir Hilmar Jensson á gítar, Andrés Þór á gítar og Nicolas Moreaux á bassa.

Tónleikarnir verða á föstudaginn, 14. nóvember, og hefjast þeir kl. 18. Aðgangur er ókeypis.

Tónleikaröðin er styrkt af Hafnarfjarðarbæ.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2