Mánudagur, nóvember 10, 2025
HeimFréttirRíkislögreglustjóri segir af sér – en flyst í Dómsmálaráðuneytið

Ríkislögreglustjóri segir af sér – en flyst í Dómsmálaráðuneytið

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur orðið við beiðni Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra um að láta af embætti. Þetta var niðurstaða fundar þeirra beggja í gær.

Þetta kemur fram í tílkynningu frá Dómsmálaráðuneytinu, en Sigríður Björk hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir ráðningu ráðgjafa í verktakavinnu sem tók 30.000 kr. á tímann fyrir m.a. að skoða vörur í Jysk og skoða staðsetningu á píluspjaldi þó helsta verkefni ráðgjafans hafi verið að skipuleggja flutning í annað húsnæði.

 „Þetta er farsæl niðurstaða og rétt ákvörðun af hálfu Sigríðar Bjarkar. Það er mikilvægt að um lögregluna ríki friður og traust. Nú stöndum við frammi fyrir því verkefni að koma rekstri embættis ríkislögreglustjóra á réttan kjöl og halda áfram að efla lögregluna í landinu. Ég þakka Sigríði Björk fyrir störf sín innan lögreglunnar undanfarna áratugi,“ segir ráðherra.

Segir af sér en flutt í stöðu sérfræðings

Í kjölfarið mun ráðherra flytja Sigríði Björk í stöðu sérfræðings í aðgerðum gegn kynbundnu ofbeldi í dómsmálaráðuneytinu.

„Ég hef lagt mikla áherslu á baráttu gegn kynbundnu ofbeldi og þessi málaflokkur er forgangsmál hjá mér og ríkisstjórninni. Sigríður Björk hefur áratuga reynslu og þekkingu á þessu sviði sem mun því nýtast áfram,“ segir ráðherra.

Grímur Hergeirsson settur ríkislögreglustjóri

Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að setja Grím Hergeirsson tímabundið í embætti ríkislögreglustjóra frá 14. nóvember nk. Grímur á 30 ára feril að baki og hóf störf hjá lögreglunni 1996. Hann hefur verið lögreglustjóri á Suðurlandi síðan árið 2022. Embætti ríkislögreglustjóra verður auglýst á næstunni.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2