Laugardagur, september 13, 2025
HeimFréttirAtvinnulífJúlíus Andri ráðinn framkvæmdastjóri Landssamtaka íslenskra stúdenta

Júlíus Andri ráðinn framkvæmdastjóri Landssamtaka íslenskra stúdenta

Landssamtök íslenskra stúdenta (LÍS) hafa ráðið Hafnfirðinginn Júlíus Andra Þórðarson í starf framkvæmdastjóra samtakanna. Hann hefur þegar hafið störf og mun gegna embættinu til 1. júní 2026.

Júlíus Andri er útskrifaður með BA-gráðu í miðlun og almannatengslum frá Háskólanum á Bifröst. Hann hefur á síðustu árum aflað sér víðtækrar reynslu af hagsmunabaráttu, stefnumótun og félagsstörfum, meðal annars sem varaforseti og hagsmunafulltrúi Nemendafélags Háskólans á Bifröst. Þá hefur hann einnig setið í háskólaráði og jafnréttisnefnd háskólans.

„Það er heiður að fá að starfa með LÍS á tímum þar sem raddir stúdenta skipta sköpum,“ segir Júlíus Andri. „Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum til að styrkja hagsmunabaráttu stúdenta og efla sýnileika hennar, sem of oft hefur fengið takmarkaða athygli.“

Júlíus Andri hefur jafnframt reynslu af stjórnmálastarfi, kosningabaráttum og almannatengslum.

Forseti LÍS segir ráðningu hans mikilvæga styrkingu fyrir samtökin. „Við erum sannfærð um að fjölbreytt reynsla Júlíusar og þekking hans á bæði hagsmunagæslu og miðlun muni efla starfsemi LÍS á næsta starfsári,“ segir Lísa Margrét Gunnarsdóttir sem var endurkjörin forseti LÍS á landsþingi samtakanna s.l. vor.

LÍS eru regnhlífarsamtök háskólanema á Íslandi og standa vörð um hagsmuni stúdenta hérlendis og þeirra sem stunda nám erlendis. Samtökin eru í forsvari fyrir rúmlega 22.000 háskólanema gegnum átta aðildarfélög.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2