Mánudagur, janúar 26, 2026
HeimÁ döfinniOpið hús hjá „Körlum í skúrum“

Opið hús hjá „Körlum í skúrum“

Karlar í skúrum kynna starfsemi sína 17. Júní n.k.í félagsheimili sínu Helluhrauni 8, klukkan 13-17.

Til sýnis verða ýmsir munir sem karlarnir hafa verið að skera út, tálga, smíða, renna, slípa, mála, ásamt silfursmíðagripum.

Karlar í skúrum eru sennilega þekktastir fyrir mælistikuna við anddyri Bókasafsins og skiptibókavitana við Hellisgerði og í Ásvallalaug.

Nýjasta smíðaverkefnið eru hreindýrin í Hellisgerði og á Thorsplani sem sett eru upp á aðventunni.

Starsemi „Karla í skúrum“ snýst um að veita körlum athvarf til þess að sinna hugðarefnum sínum, rjúfa einangrun þeirra, styrkja félagslegan grunn og efla félagsleg tengsl.

„Þetta gerum við m.a.með því að leggja til góða aðstöðu til alls konar föndurvinnu hvort sem það er í tré, stein, gler, járn, leður eða annað efni sem félagar vilja vinna með. Tilgangurinn er að fá karlmenn til að „standa upp úr sófanum“ , hitta aðra karla, fá sér kfffisopa saman og spjalla. Einnig til þess að vinna handverk og fara í skoðunarferðir. Markmiðið er að hjálpa körlum til að halda andlegri og líkamlegri heilsu lengur en ella“, segja Gísli Norðdahl og Jóhannn Salomon Gunnarsson félagar í Körlum í skúrum.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2