Verslunarmiðstöðin Fjörður og Hönnunarhúsið standa nú að nýjum Miðbæjar jólaratleik.
Markmið ratleiksins er að vekja athygli á fjölbreyttum verslunum og þjónustu í miðbæ Hafnarfjarðar. Með leiknum er fólk í raun leitt inn í hinar ýmsu verslanir sem fá tækifæri til að kynna verslun sína og um leið staðfesta þátttöku í leiknum.
Hvatinn eru veglegir vinningar sem þátttakendur eiga möguleika á að vinna og gleðin af að hafa ástæðu til að heimsækja sem flestar verslanir í miðbænum.
Fyrirtækjaeigendur eru jafnframt hvattir til að taka vel á móti ratleiksgestum.
Ratleikurinn fékk örstyrk frá Hafnarfjarðarbæ.
Þátttökublað er að finna í Fjarðarfréttum og hjá þátttökufyrirtækjum
Þátttökublað var birt í nýjasta blaði Fjarðarfrétta auk þess sem prentuð hafa verða þátttökublöð sem liggja framm hjá þeim sem taka þátt í leiknum. Á þátttökublaðinu eru verslanir og þjónustuaðilar merktir inn, ásamt leiðbeiningum og fær fólk stimplað á blaðið í verslunum við heimsókn þar.
Þær verslanir og staðir sem taka þátt eru með merki leiksins í glugga hjá sér.
Nöfn allra sem skila inn lausnarblöðunum með a.m.k. 8 stimplum fara í pott og dregnir eru út fjöldi veglegra vinninga og þeir sem fá stimpil á 16 stöðum eða fleirii eiga möguleika á enn glæsilegri vinningum.
Skilið lausnum í síðasta lagi 15. desember
Skila skal lausnarblöðum í sérmerktan kassa í verslunarmiðstöðinni Firði í síðasta lagi 15. desember nk.
Upplýsingar um vinningshafa verða birtar í jólablaði Fjarðarfrétta 21. desember nk.
Glæsilegir vinningar
Fjölmargir vinningar eru í boði og listinn hér ekki tæmandi en verður uppfærður eftir því sem vinningar bætast við.
- Verslunarmiðstöðin Fjörður – 30 þúsund kr. gjafabréf
- Álfagull – Flottur bollastandur
- Bókasafn Hafnarfjarðar – Bók fyrir fullorðna
- Bókasafn Hafnarfjarðar – Bók fyrir börn
- Penninn/Eymundsson – Borðspil
- Penninn/Eymundsson – Borðspil
- Nonni gull – Hálsmen með Þórslíkneski
- Bæjarbúð – Lítið bókaljós frá Gingko
- Skóhöllin – Leðurhanskar
- Úr & gull – 10 þúsund kr. gjafabréf
- Hafnarborg – Bókin Á eintali við tilveruna, Eiríkur Smith
- Hafnarborg – Songbirds, ljósmyndabók, Katrín Elvarsdóttir
- The Mistress – Fallegt gjafabox með fernum nærbuxum
- Leikfangaland – 5 þúsund kr. gjafabréf
- Litla gæludýrabúðin – Gjafabréf í hundabað
- Litla gæludýrabúðin – Gjafabréf í hundabað
- Litla gæludýrabúðin – Gjafabréf í hundabað
- Litla gæludýrabúðin – Gjafabréf í hundabað
- Litla gæludýrabúðin – Gjafabréf í hundabað
- Dalakofinn – Sjal og hanskar

