Fimmtudagur, nóvember 20, 2025
HeimÁ döfinniMenningarkvöld í Hafnarfjarðarkirkju

Menningarkvöld í Hafnarfjarðarkirkju

Á sunnudaginn verður sannkallað menningarkvöld í Hafnarfjarðarkirkju en von er á góðum gestum.

Rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson les úr ljóðum sínum sem innihalda trúarleg stef, á milli þess sem þau Margrét Eir Hönnudóttir, Andrés Þór Gunnlaugsson, Agnar Már Magnússon og Þorgrímur Jónsson leika ljúfa tóna.

Sr. Jónína Ólafsdóttir flytur hugleiðingu og bæn og leiðir stundina.

Á eftir er messukaffi og samfèlag í safnaðarheimilinu þar sem Einar Már mun spjalla um bók sína Skáldleg afbrotafræði.

Sannkallað menningarkvöld í Hafnarfjarðarkirkju kl. 20, 31. október.

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2