Föstudagur, júlí 4, 2025
target="_blank"
HeimFréttirSkattrannsóknarstjóri skoðar 25 milljarða kr. greiðslur frá AirBnB til Íslands

Skattrannsóknarstjóri skoðar 25 milljarða kr. greiðslur frá AirBnB til Íslands

Vinna er nú hafin hjá Skattrannsóknarstjóra við frekari greiningu gagna sem bárust um greiðslur frá AirBnB til íslensxkra skattþegna á árunum 2015-2018. Í framhaldinu verður metið hvort þörf er á frekari aðgerðum af hálfu embættisins.

Í lok árs 2018 óskaði skattrannsóknarstjóri eftir gögnum frá Airbnb á Írlandi um fasteignir leigðar til útleigu á Íslandi í gegnum bókunarvefinn.

Með aðstoð írskra skattyfirvalda hafa embættinu nú borist gögn og upplýsingar um greiðslur til íslenskra skattþegna.

Skv. upplýsingunum hafa greiðslur að fjárhæð kr. 25,1 milljarður vegna áranna 2015-2018 borist frá AirBnb.

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2