fbpx
Fimmtudagur, mars 28, 2024
HeimFréttirBjörn fékk Rauða jakkann

Björn fékk Rauða jakkann

77 kepptu á árlegu golfmóti Hauka

Á föstudaginn í síðustu viku í sunnan blæ og fimmtán stiga hita gengu 77 þátttakendur til leiks í hinu árlega golfmóti Hauka á iðagrænum Hvaleyrarvelli. Mótið var hið 28. en það var fyrst haldið 1989.

Björn Þorfinnsson sigraði í punktakeppninni og hlaut hinn eftirsótta Rauða jakka.

Sigurður Aðalsteinsson öldugameistari Hauka ásamt Jakobína Cronin ekkju Ólafs H. Ólafssonar og Guðmundi Friðrik Sigurðssyni.

Sigurður Aðalsteinsson var sigursæll, sigraði í höggleik án forgjafar og fékk Haukakönnuna en hann varð einnig Öldungameistari Hauka og fékk farandgrip í minningu Ólafs H. Ólafssonar.

Sigurður Aðalsteinsson sigraði í höggleik án forgjafar. Með Bjarna Hafsteini Geirssyni og Guðmundi Friðrik Sigurðssyni.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2